Lífið er laglína.
Ég hef sofið aðeins á verðinum í tilkynningagleðinni en ég kenni prófunum um sem tóku allan minn tíma þegar desembermánuður stormaði inn. Því tilkynni ég hér með að platan mín 'a beautiful life - recovery project' kom út á iTunes 17.desember. Ég er kát lítil kerling með þetta þar sem þetta hefur ágætis auglýsingagildi þrátt fyrir að iTunes taki mjög mikið fyrir sinn snúð.
Jólin hafa verið mér góð í alla staði. Skröggurinn leið fljótt úr sálinni um leið og ég hafði klárað prófin og jólaandinn helltist yfir mig og litla kotið. Fjölskyldan kát og allir glaðir í sálartetri. Mikið um ofát en ég er að safna í vetrarforða og gengur þetta ágætlega hjá mér.
Tvö brúðkaup um helgina þar sem ég ætla að vanda til söngs og fagna með einum hjónanna sem eru jú Guðrún Jóns og Daði Árna. Mikil gleðistund sem rennur upp þar. Litlir tvíburar munu trítla inn kirkjugólf og hlátrasköll og tár munu liðast um veislusalinn við endurfundi vina.
Rakel Sif ofurskutla og verðandi móðir er á leiðinni til mín og það hlakkar svo í mér að strjúka kúluna enda um myndarlega kúlu að ræða.
Árshátíð S2000, nýársboð og annað eins glens á döfinni. Árið 2008 að ganga í garð. Tíminn flýgur eins og hrafninn góði og fyrr en varir er maður kominn í gröfina með glott á vör. Ég ætla rétt svo að eiga fyrir jarðarförinni og eyða öllum mínum peningum í heimsreisur og styrki til bágstaddra. Afi segir alltaf að maður taki auðæfin ekki með sér í gröfina. Því leggur hann allt sitt fé í hugðarefni sín sem halda honum gangandi á gamals aldri. Svo laumar hann máske að manni þúsundkalli þegar vel liggur á honum. Ofan á allar bjúgurnar sem ég hef snætt hjá þeim ektahjónum um ævina og bensínið sem fór í að skutla manni á æfingar í gamla daga, finnst mér það alltof mikið. Hann kveður við; ,,Þetta fer ekki í gröfina með mér, fjandakornið".
V

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli