uppgjör og framhald
Árið 2007 var ár vaxtar og endurnýjunar í mínu lífi. Árið byrjaði með pompi og prakt en vinir mínir Jamie og Fayney mættu á Klakann og lögðu lokahönd á hljómplötu mína með mér. Við ákváðum að setjast að í Reykjanesbæ og í 6 vikur kláruðum við upptökur og fíniseringar í hljóðverinu Geimsteini. Færustu spilarar landsins lögðu hönd á plóg, brunuðu Brautina og settu punktinn algjrölega yfir i-ið. Ég tók að mér hin og þessi verkefni í músíkinni til að selta grautinn meðfram plötuvinnunni og fór það jafnan allt vel.
Spúsi minn kláraði lokaritgerð sína með láði og dáð og útskrifaðist úr lögfræði í HÍ í febrúar 2007. Hann var einmitt einn af þeim sem brunaði Brautina til að setja snilli sína á verkið og kann ég honum ævinlega bestu þakkir fyrir enda nóg annað að gera hjá stráknum í fullri vinnu hjá lögmannstofunni Lex.
Ég kom mér í hörkuform, mætti samviskusamlega í Laugar og tók á því með húsmæðrum, bankamönnum og handrukkurum. Sonja Bergmann, hjúkrunarfræðingur og þrusubeib, tók mig í einkaþjálfun en þess má geta að hún er nú orðin framkvæmdastjóri World Class á Seltjarnarnesi.
Ég ferðaðist mikið til Lundúna vegna plötunnar og heimsótti Rakel mína til Köben sem einmitt gifti sig 2007 og varð bomm.
Við spúsi ákváðum að sumarfríið skyldi tekið á Klakanum og var ýmislegt gert sér til upplyftingar. Við héldum upp á 25 og 30 ára afmælin okkar (ég sú yngri vitanlega) og buðum til stórveislu á Þingvöllum þar sem veitingar flæddu yfir mannskapinn, hoppikastali var á svæðinu fyrir börnin og fjölskylda og vinir hópuðust saman til að fagna með okkur. Þegar rökkva tók í sumarblíðunni var kveikt á varðeldi og slegið í brekkusöng. Stóð þetta langt fram eftir og fólk tjaldaði eða nýtti sér gistiaðstöðuna. Ógleymanlegur dagur í alla staði og staðfesti þann grun minn að maður væri manns gaman og að ég væri ansi rík af vinum.
Við fórum til Eyja á Þjóðhátíð sem varð í raun lítið ættarmót, keyrðum Vestfirðina á enda með belgískum vinum okkar, skruppum í haustferð til Barcelona með vinnu spúsans, spilaði á Airwaves með góðri lukku, gaf loks út plötuna eftir að hafa stofnað útgáfufyrirtækið Nymph ehf. og hélt útgáfutónleika með ómetanlegri hjálp Anitu Ólafsdóttur og þeim skvísum hjá Practical.
Einnig kláraði ég fyrstu önn í mannfræði, fullt 15 eininga nám og uni mér vel í þessari grein.
Ég hef vaxið til betri vegar þó svo að vegurinn hafi aldrei verið sérstaklega boginn en tilfinningin er þó sú að ég berji frá mér fjöll og firnindi og fari mínar eigin leiðir.
Framhaldið er spennandi, árið 2008 'has a cling to it'. Platan heldur áfram að seljast og vaxa í eyrum fólks, spilerí verður erlendis, plögg og aftur plögg og mannfræðin heldur áfram í Háskólanum. Mín ástkæra systir giftir sig í sumar og framundan eru bjartir tímar.
Ég þakka enn og aftur mínum góðu vinum og fjölskyldu fyrir frábæra tíma á liðnu ári.
V

4 ...og gammar geysa!:
þú ert lovely týpa...
komdu í heimsókn til mín aftur af því að mér finnst þú skemmtileg og barnið þarf að venjast röddu þinni í móðurkviði...
ok, komdu bara...
rassamamma xxx
takk fyrir allt og allt. Lífið væri pointless án þín veddi!
Takk fyrir plötuna :)
Hún er mjög góð. Ég er alveg húkt á laginu happy to be there. Þetta er klárlega með betri lögum sem hafa verið samin og flutt á klakanum.
kv
GUðbjörg Kr.
Gleðilegt ár Védís, falleg þessi færsla.....yljar manni og maður þakkar fyrir sitt. Ef þú ert á vappinu um skólasvæðið og langar að taka kaffi þá er mín þarna einhvers staðar.....oftast :)
kveðja,
Kristín María
Skrifa ummæli