15.1.08

hér er britney

..um Britney, frá Britneyju til Britneyjar.

Á mbl.is:
,,en fregnir hermdu að lögmaður Kevins ætlaði að fara fram á við fulltrúann að Britneyju yrði alfarið meinað að hitta syni þeirra Kevins þangað til í apríl"

Nú er mál að linni. Ekki nóg með að fréttaflutningur skuli vera yfirdrifinn erlendis sem og hérlendis af greyið stelpunni, þá er farið að beygja nafn hennar inn í íslenskt málfar.

Ég skil ekki þessa þörf fyrir að goðsagnakenna fólk upp að því marki að það er bókstaflega drepið með yfirgangi og afskiptasemi eins og gerðist með Díönu prinsessu. Díana um Díönu frá Díönu.....

....æ snúið ykkur að öðrum uppbyggilegri hlutum. Þetta er svo fjári leiðinlegt umræðuefni. Who freakin' cares?

Já og Böddi ,,lenti í" því að halda framhjá -framan á Séð og Heyrt. Hver í #$%/& er Böddi? Og hver er ég ef því er að skipta.

Öllum er sama! Þessir ,,allir" vita það bara ekki ennþá. Maður les þetta áfram eins og maður horfir áfram á næsta Desperate Housewives... nema þetta er ekki sjónvarpsþáttur. Þetta er líf fólks sem er gert að sápuóperu og allir taka þátt. Allir hjálpa til við að murka lífið úr þessum guðlegu verum sem fara víst ekki á klósettið og droppa einum feitum eins og við hin.

Ég biðst forláts ef ég særi blygðunarkennd fólks með ofsanum í mér. Ég hef bara fengið nóg.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Svo sammála! og já Sorpuferðin var hilarious :) Vel gert Brani

kveðja,
Kristín Maria

Nafnlaus sagði...

Fréttaflutningur af Bödda er reyndar með þeim frumlegri sem sést hefur...

Böddi lenti í framhjáhaldi er flottasta fyrirsögn sem sést hefur í Séð og Heyrt...

Verst að enginn kannaðist við kauða fyrr en eftir fréttaflutninginn og því kannski ekki fréttaefni. Menn og konur hafa verið að "lenda" í framhjáhaldi í lengri tíma

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****