jeminn eini
Tilefnið til bloggs er rækilegt og það er aldurinn sem er að færast yfir mig.
Af hverju er ég orðin kerling?
*Ég hef verið frelsismær frá upphafi og aldrei við símreikninga kennd, en nú hef ég skráð mig í e-s konar 'betri leið' hjá símanum og rak upp stór augu þegar ég opnaði minn fyrsta símreikning um daginn. 'Frelsið' var þá bara að gera sig eftir allt saman. Það er ástæða fyrir því að þetta heitir 'frelsi' Védís mín.
*Þau skipti sem ég fer 'í bæinn' fara hverfandi, og þegar ég fer, þá lufsast ég heim aftur kl.1.30 eftir að hafa fussað og sveiað yfir ungdómnum. Prikið, Kaffibarinn, Vegamót og allar þessar búllur eru yfirfullar af vinum og vinkonum litlu bræðra minna - og jafnvel að maður sjái glitta í litla bróður.
*Ég segi 'gavööð' eða 'jeminn' ef ég fæ góðar/slæmar fréttir
*,,Ertu gift, komin með eitt, búin með háskólann, eigið þið íbúðina?" Kannist þið við'etta? Íslendingar eru áfangasjúkir.
*Mín kynslóð er óðum að giftast, eignast börn og hefja svokallað 'framhaldslíf'.
*Ég er búin að gangsetja lífeyris-, sparnaðar-, og líftryggingarkerfi inn á heimabankann. Ég tryggi nefnilega ekki eftir á.
*Ég hengi upp minnismiða út um alla íbúð.
*Þrifdagar eru á laugardögum á heimili okkar! - ekki séns að bakka út úr því!
*Ég á 'signature' eftirrétt.
*Aldís systir er að gifta sig eftir tvær vikur.
*Ég er með menningarhorn á blogginu mínu, eins og einhver fjeeeáviti!
Lífið er rétt að byrja, ég viðurkenni það... þetta er nú allt til gamans gert.
Ábyrgðin, meðvirknin og jeminnveikin er kærkominn fylgifiskur aldursins. Það er ekki leiðum að líkjast, ef ég yrði hreinlega að móður minni einhvern daginn. Sú er flott!
V

1 ...og gammar geysa!:
thú ert flott! ég tala vid thig í dag takk. sendu mér sms thegar thú ert til vidtals :)
Skrifa ummæli