11.7.08

loftið er hlaðið orku

Ég hélt ég myndi aldrei teljast til letibloggara en sá dagur er víst löngu upprunninn og ég tek því með beisku bragði í munni. Vissulega spila annir inn í þetta en það er eins og tjáningarþörfin hafi breyst og henni beint í músíkina og skipulagsstörf sumarsins.

Margt dásamlegt er að baki eins og brúðkaup ástkærrar systur minnar og í gær kláraðist Sumarhátíð Vinnuskóla Reykjavíkur en ég sá um að skipuleggja herlegheitin ásamt því að vera yfirleiðbeinandi skapandi hópa innan Vinnuskólans. Þar má telja Fatalínuna (sem var í Mogganum í dag), Kvikmyndahópinn, Kaffihúsahópinn (lærir rekstur fyrirtækis), Fjöllistahóp, Leiklistarhóp, Skapandi stelpur í Þróttheimum, Lifandi Vegvísa í miðbænum, og Graffiti hóp. Svo hélt ég trommunámskeið fyrir stelpur sem vinna hin hefðbundnu garðyrkjustörf og Sigtryggur Baldursson kenndi þeim takta í slagverkinu. 
Í gær var sumsé 3000 unglinga apparat á Klambratúni með íþróttamóti, mannlegri skák, sumoglímu, sviðsupákomum, Páli Óskari og áfram má telja. Þetta gekk fram úr björtustu vonum og ég er stolt af því að tilheyra því ágæta teymi sem Vinnuskólinn er. Þetta hefur verið draumasumar hingað til. 

Svo tekur bara næsta verkefni við... alltaf nóg að gera, sem betur fer.
Brúðkaupssöngurinn er viðloðandi hvert einasta sumar og um daginn vildu tilvonandi hjón fá lagið 'happy to be here' en það er í fyrsta skipti sem ég hef verið beðin að syngja lag eftir mig og spúsann í athöfn. Þá fannst mér ég hafa náð einhverjum status - svona eins og ég skipti einhverju máli, þegar tveir elskendur hlýja sér við frumsamda tóna! Maðurinn er víst hégómagjarn í eðli sínu. Þó er einungis einn spegill til á heimilinu. Það hlýtur að jafna þetta út.

Ég fagnaði 26 ára afmæli mínu þann 8. júlí og spúsinn vakti mig með dýrindis morgunmat, blómum og regnbogum. Sjálfur verður hann 31 árs á morgun 12. júlí svo það linnir ekki látum í afmælisbransanum hjá okkur. Það er óskandi að framtíðarbörn okkar fæðist á öðrum mánuðum ársins, því kökugerð Vedda sinnir vart eftirspurn.

Kveð að sinni með mynd af mér og yndislegum mágkonusyni mínum, Gabríel Bergmann. Hann er sko þriggja ára Íslendingur/Dani og þegar kveikt er á kerti þá segir hann ,,hafa huggulegt!" - algjör sætabaun.

4 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta og aftur til hamingju med afmælid. Flott myndin af ykkur. Gabriel sa hana og for ad skellihlæja! "Eg og Védísi" kv Sonja og Gabriel i DK

Gudrun sagði...

Ohh hvað þið eruð sæt og fín
Bestu kveðjur
GJ

Nafnlaus sagði...

hahahahha skemmtileg vidbrögd hjá Gabríel vid myndinni! thid erud alveg dásamleg saman!
sakni sakn frá maddanum á vébergid mitt :)

Nafnlaus sagði...

fleiri myndir komnar inn

knús,

margrét maría

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****