Haustværð
Ég fann hjá mér aukna skrifþörf í dag eftir að hafa lesið 100 blaðsíður í Biometry I. Þar sem ég tek líffræðilega mannfræði sem aukafag við mannfræðina, þá ber mér að klára skyldukúrsa innan líffræðinnar. Fyrsti kúrsinn í haust er því lífmælingar og mér líður eins og skrattanum úr sauðaleggnum í tímum. ,,Eruð þið með mér?" spyr kennarinn eftir að hafa romsað áfram um fervik, frávik og heilu góssin af formúlum. Unglömbin fersk úr raunvísindadeild menntaskólans jánka. Augu kennarans beinast að Veddaranum og við honum blasa lítil vonlaus hvolpaaugu og reytt ljóst hárið. ,,Eehh, sí senor, entiendo todo que dices!" -> málabraut Verzló hefur sína kosti en það virðist ekki ætla að skila sér hér.
Hvað gera bændur þá?
Jú. Villa Vill á fóninn meðan sólarglæta gægist inn um veðraða haustglugga.
Allt svo ljúft, allt svo gott.
Hvergi er betra að vera nema á Íslandi þegar draumarnir sækja að manni – þegar maður er göfugur í hugsun og háttum. Þegar maður er þakklátur fyrir lífið.
Nú þegar haustar
og hverfur birtan
Ég heyri húmið
Læðast að
Smeygja sér inn
í hverja frumu
og umbreytast í værð.
V.H.Á.

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli