Þú fyllir öll skynjunarvit
Fran einn Munoz, snillingur og dásemdarmaður landaði formlega minni ástkæru Bryndísi í gærkvöldi með fögru bónorði. Það verður því slegið til brúðkaupsveislu næsta sumar á búgarði einum nálægt Madrid. Ég get ekki lýst gleði minni nægilega en Fran er jú mikið gæðablóð úr suðrinu sem hefur tekið okkur öll með ylhýru vináttutrompi! Vébergsliðið mun ekki láta sig vanta í veisluna að ári og nú þegar standa yfir útsetningar laga að beiðni hinna trúlofuðu.
Þessi mynd er tekin í Segovia þegar við skötuleysin heimsóttum þau til Madridar haustið 2006. Þar voru snæddir svínshausar og hugsjónir ræddar.
Feliz compromiso, mi queridos amigos!
Ég elska ykkur!!!
V

2 ...og gammar geysa!:
Ég boða hér með komu mína til Madrídar. Spurning um að fara að bóka flug... Hvernig er það er Halli minn ekki tveggja konu maður.
Get vart beðið...
takk fallegust mín! pabbi er búin ad taka fá einhver flugsaeti, thrátt fyrir ad ekki sé búid ad ákveda dag. hressandiiiiiiiiiiiii love love loveeeeeeee
Skrifa ummæli