14.9.08

Zorro - nafn með rentu!


Eftir dágott djamm og læðustand í miðbænum hvíldi Zorro sig í bakhúsi einu á Freyjugötu. Freyjan á samnefndri götu fann hann þar og var svo indæl að kíkja á Kattholt þar sem ég hafði skráð hann týndan. Þar með eru farsæl endalok á leitinni að Zorro.

Hann hefur étið stærð sína í tvígang hér á heimilinu og er einkar kelinn eftir að hann rataði aftur í tímabundin heimkynni sín.

Köttur úti í mýri, setti upp á sig stýri, úti er ævintýri.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****