happy to be here
Ég er hálf morkin, stödd í Neskirkju eftir tíma í rannsóknaraðferðum.... en um leið og ég opna Moggann í dag lifnar yfir mér...
"Happy to be HERE" eða ,,Glöð er ég að vera HÉR" í íslenskri þýðingu, lag mitt af nýútkominni plötu er nú í 4.sæti yfir mest spiluðu lög í íslensku útvarpi. Einnig gengur platan afbragðsvel á iTunes. Þetta þykir mér æðislegt í ljósi þess að ég hef ekkert markaðsafl á bak við mig, enginn hefur hagsmuna að gæta í kringum mig og ekki réði ég fólk í vinnu við að hringja inn og biðja um lagið. Þetta er þá hægt eftir allt saman með tóma vasa og hugsjónir einar.
Það sem er ennþá skemmtilegra er að ég samdi það með spúsa mínum Þórhalli Bergmann. Gaman er að hugsa til þess þegar við sömdum lagið óvart í sumarblíðunni 2006 bæði í Rekjavík og London, og sjá það svo klífa spilunarlistann einu og hálfu ári síðar. Það þykir mér vænt um. Orsök og afleiðing (",)
V

1 ...og gammar geysa!:
Já, og ég fer alltaf að gráta þegar ég heyri það!
Geturðu ekki ráðið mig í vinnu? Spilað fyrir mig lög sem þú semur og ef ég fer að grenja, þá verður það "hit" lag og allir eru sáttir! Nema ég auðvitað, grenjandi einhvers staðar úti í horni.
Ég fór einmitt að grenja yfir því þegar ég var að labba út úr metro-inu við Kongens Nytorv á laugardaginn. Þetta hættir seint!
bless.
Skrifa ummæli