7.2.08

vúhúúúú

Komin í kotið eftir frábæra plöggferð til Lundúna og kærkomið stopp í Köben hjá Rakel Sif minni. Sú er svo sannarlega á steypinum og fer að eiga nú á næstu vikum. Ekki lítið falleg kona þar á ferð, með myndarlega kúlu og það er greinilegt á öllu hennar fasi og gleðiljóma að hún ber líf í kviðnum.

Tilefni bloggs míns er þó ást mín á Páli Óskari. Það er einhver hamingjuára í kringum manninn og þegar ég sé hann í sjónvarpinu syngjandi fyrir krakkana á Skrekki, þá stekkur mér bros á vör og ég fer að dilla mér með 'Allt fyrir ástina'. Ég fæ fiðring í magann og langar helst að kippa honum út úr imbanum, inn í stofu til mín og knúsa hann. Þetta er stórkostlegur listamaður, með íðilfagra rödd og síðast en ekki síst er hann falleg og góð manneskja.

Það er bara þannig.

Gott að vera komin heim og maðurinn minn er fallegur sem aldrei fyrr. Fínt að kíkja burt af Klakanum til þess, meðal annarra hluta, að minna sig á gersemarnar sem bíða manns á skerinu.

Minni á www.myspace.com/vedis og www.vedismusic.com fyrir 'ó'reglulegar fréttir af áreynslum mínum í tónlistarheiminum en þar er jú hægt að hlusta á herlegheitin og koma sér aðeins inn í þetta. Eflaust meira gefandi en bullið í mér hér sem ég fúslega viðurkenni að skortir stundum æðri meiningu en æ, það er bara svo gott að tjá sig fyrir allra augum. Ekkert að því!

V

1 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

ótrúlegt en satt ad thá hrekkur upp úr thér einstaka ord af viti. thetta er gott stöff!
trútsatrúts!!!

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****