tíkin hún póli
Þá er heitt í hamsi í borginni enn á ný. Logandi pennar á lofti í bloggum og blöðum, hver með sína skoðun.
Ég ætla aðeins að segja þetta; Hefndin er sæt en þegar hún selur sig svo ódýrt sem raun ber vitni, þá er það engum til framdráttar. Ég get skilið að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið súr að missa sinn meirihluta eftir REI málið enda öflugur hópur, ungt og framsækið fólk með hugsjónir. Þar af leiðandi hafi þeir reynt sitt allra besta til að endurheimta hann, Villi segir ,,sorrí krakkar" og allir verða góðir. Ekki alveg svo einfalt að mínu mati. Það var greinilega hlaupið að því að setja saman nýjan meirihluta, sérstaklega í ljósi þess að Ólafur hafði ekki kannað menn sína áður en hann dýfði sér í djúpu laugina.
Að mínu mati er það borgarstjórinn sem ,,blívar". Hann er aðal drifkrafturinn sem lætur hlutina gerast, ekki síst þegar hann nýtur góðs fylgis í kosningum. Ég ætla ekki að dæma um manneskjuna Ólaf en fylgið á bak við hann samanber fylgi hinna fölnar í samanburði.
Dagur B. er ágætur borgarstjóri og eflaust meira með á nótunum en Villi, hver veit? En nú er borgin í festum og þráir að einhver sinni henni. Ég hef lúmskan grun um að lítið eigi eftir að standa uppi að loknu kjörtímabilinu nema rústir einar. Enginn Fönix þar á ferð.
En yfir í aðra og skemmtilegri hluti eins og menningarútstáelsi.... ég fór á Skilaboðaskjóðuna síðasta sunnudag og sveif út að henni lokinni. Ég mæli með því að hver og einn drífi sig á þessa dásamlegu skemmtun. Dvergarnir allir voru stórkostlegir að mínu mati. Ég geng ætíð í barndóm á svona sýningum og ekki síður þegar ég horfi á Disney myndir. Spúsinn kallar mig eilífðarbarnið og ætli ég sitji ekki bara sátt að því.
Einnig fórum við á Brúðgumann í bíó og mæli ég einnig með henni. Myndatakan fannst mér einstaklega góð, fallegt landslagið á eynni og tónlistin í bland bjó til ákveðna stemmningu sem verður seint leikin eftir í íslenskum bíómyndum. Handritið var fínt og leikararnir skila allir sínu af mikilli snilld.
Ég hitti gamla vinkonu mína úr Álftamýrarskóla í ræktinni í morgun og var það alveg magnað. Það var margt brallað í gagnfræðadeildinni en við vorum sammála um það að við hefðum alltaf staðið á okkar og verið kjarnakvendi, aldrei leiðst út í það sem svo skemmtilega kallast ,,rugl". Kærkomið að ná svona göfugri niðurstöðu 10 árum síðar!
Nú á ég fyrir höndum langan dag við lestur. Mannfræðin byrjaði með pompi og prakt í síðustu viku og ég ætla að harka þetta fram til vors. Það styttist í utanför mína til Bretlands í næstu viku þar sem ég mun plögga plötuna, drekka te og bragða á skonsum. Svo skoppa ég yfir til Köben í nokkra daga og knúsa bumbubolluna Rakel mína. Stúlkan sú er á steypinum og er tilhlökkunin að sjálfsögðu mikil enda ekki á hverjum degi sem ég verð stóra frænka og tek ég það hlutverk að sjálfsögðu mjög alvarlega.
Við skötuhjú förum á Hvolsvöll næstu helgi með Barða og hans spúsu en hún ku vera þaðan. Ætlum við að elda saman og gista þar eina nótt. Alltaf gott að njóta samneytis við Barða, mikið um glens og grín og svo er spennandi að sjá hvort teknó lagið hans "Hey hey ho ho" fari alla leið til Serbíu. Það er æði líklegt, miðað við fréttaumfjöllunina sem það hefur fengið hér heima.
Jæja, áfram getur maður blaðrað. Vildi bara blogga örlítið til að tefja lærdóminn... en ég er í sæluvímu yfir því hvað lífið er gott og fínt, þrátt fyrir tíkina hana póli sem tröllríður borginni.
V

2 ...og gammar geysa!:
ég hef gott af þessum lestri, það er nefninlega deprí dagur hjá mér. Tíkin er í ruglinu, en það ert þú ekki trútsinn þínn!
xxx
Alltaf hressandi að koma á Hvolsvöll fer reglulega í heimsókn til tengdó :D
Skrifa ummæli