Brassabarn komið í heiminn!
,,Jæja Védís mín, þú ert orðin stóra frænka!" - svona er maður vakinn um miðjar nætur og ég held þetta tróni efst á lista yfir bestu næturtruflun í sögu Vedda. Lítil stúlka fæddist þeim Rakel og Brynjari í nótt og ætli hún eigi því ekki afmælisdaginn 25.febrúar 2008. Stúlkuhnoðri með mikið svart hár hefur því litið dagsins ljós og mun sú stutta væntanlega þurfa að berja bálskotna drengina frá sér þegar hún verður eldri, enda fyrirtaks genasamsætur sem þarna vinna saman.
Það er ólýsanleg hamingja innra með mér sem mér tekst ekki að koma almennilega frá mér í orð en eitt er þó jákvætt og það er vinstri fótur minn sem hætti að titra um leið og ég fékk fréttirnar. Það er ekki tekið út með sældinni að vita af vinkonu sinni með hríðir hinum megin við Atlantshafið og ég lá stjörf af stolti eftir símtalið góða.
Ég á því litla frænku núna sem ég elska nú þegar svo ofboðslega mikið og ég hef ekki einu sinni litið hana augum. Það er einkennileg tilfinning en ó svo góð.
V

1 ...og gammar geysa!:
Elska þig.
Þú ert fallegust.
xxx Rakel
Skrifa ummæli