að spila eða ekki spila
... að vera eða ekki vera. Ég sé fyrir mér drungalegar vistarverur Hamlet þar sem hann liggur í þankagangi. Með svimandi háan yfirdrátt í bankanum, þjakaður af tilhneigingu sinni til lista og.. tja lystisemda. Hvers á ég að gjalda? -spyr hann beiskur í bragði.
Hinir týpísku komplexar listamannsins, ef mér leyfist að alhæfa, eru leiðirnar sem á að fara, ekki að fara og enn nú meira, þær ótroðnu leiðir sem hann vill troða.
Ég mótmæli! Komin með leið á að afsaka mig. Maður má og getur vel gert allt sem maður vill, svo lengi sem það brýtur ekki í bága við almennt siðferði manns eða mannúðarlög einhvers konar. Hitti fyrir dömu um daginn sem skildi ekki hvernig ég gæti verið tónlistarkona og verið í mannfræði. ,,Varstu alveg komin með nóg s.s.?" sagði hún í vorkunnartón og ég varð eitt spurningamerki í framan .... ,,já, eða sko, á tónlistinni, þú veist, er þetta ekki bölvað hark?".
Mér hefur sjaldan gengið betur í músíkinni, einmitt nú þegar ég er að gera allt sem mig langaði að gera; skellti mér í mannfræðina, sjálfboðaliði Rauða Krossins (mæli með því), gaf út plötuna mína, stofnaði fyrirtæki o.s.frv. Platan blómstrar á iTunes, hljómsveitin mín er frábær og lífið er allt í einni ljúfri löð. Nei, ég er ekki að farast úr stressi og nei, þetta er ekki stórkostlegt mál.
Fólk talar um að það hafi aldrei tíma í eitt né neitt. Mín skoðun er hins vegar sú að fólk eigi að gefa sér tíma í hugðarefni sín, drauma og löngu þráðar upplifanir og hætta þessu væli. Þá fyrst fer blómið að blómstra þar sem það lá áður í skraufþurri mold geispandi golunni.
Ég ætla því, til upplyftingar orða minna, að eiga yndislegt sumar í vændum:
*Spila með mögnuðu hljómsveit minni
*Knúsa spúsa
*Vinna vinna vinna
*Ferðast um landið
*Sjálfboðaliðast
*Gefa systur mína til giftingar
*Kenna nýju litlu frænku hvernig maður heilsar að sjómannasið
*Njóta
V

6 ...og gammar geysa!:
Ég missti af þér í gær sökum brjóstagjafar...
Rassamamma xxx
hún sýgur og sýgur. thú er dugleg stelpa hervör, gefur af thér eins og ljónid. ljónid.
Skemmtilegar vangaveltur...Við erum allt of mikið að bíða eða hugsa til baka... Þurfum að vera duglegri að njóta dagsins í dag.
Núið er best :)
Þess má geta að ég þoli ekki þegar fólk notar frasann; " ég hef ekki tíma".
Það má alltaf búa til tíma !
Takk fyrir gærkvöldið skvís... Er enn með brosið á mér eftir þetta!!! Takk fyrir SNILLDAR hugmynd:)
Luv'ja
Veddi...Þetta er eins og talað út úr mínu hjarta. Sem betur fer lifum við nú á tímum þar sem við þurfum ekki að taka ákvörðun fyrir fullt og allt hvað við ætlum að verða þegar við erum orðin stór. Þó að maður fari í ákveðið nám þýðir það ekki maður sé algerlega hættur við e-ð annað. Það má alltaf bæta við og/eða strika út af "hvað ætla ég að gera í lífinu"-listanum. Spurning í nýjan gleðibanka texta ?
(Saxófónn.. dídídí) ,,Þú skalt syngja lítið lag um minnimáttarkenndin' í brjósti þér ....þú leggur ekki inn í skólabankann tóman plúúúús.... "
Skrifa ummæli