20.2.08

lífið er lotterí


Skíðaferðin var hressandi til muna og enn er verið að jafna sig á nokkrum veltum í brekkunni. Marblettina fékk ég jú á spennandi stöðum og er þetta óðum að hverfa með hækkandi sól. Þemalag ferðarinnar var óneitanlega lagið 'lífið er lotterí' með Þremur á palli og við sungum það skvísurnar, á leið niður Hlíðafjall. Merkilegt hvað maður kemst langt á því að vera alltaf með skíðin í plóg.

Slyddan og leiðindin á Klakanum eru hvimleið en ég fagna birtunni sem sígur inn um gluggann á morgnana. Skólinn er í ágætu standi, sumir kúrsar betri en aðrir, en líffræðilega mannfræðin heillar þó mest.

Það styttist óðum í að ég verði stóra frænka þar sem Rakel mín er að eignast sitt fyrsta barn von bráðar. Vinstri fótur minn er því farinn að titra aftur villt og galið af spenningi.

Einu sinni vorum við stelpukjánar að dúnka höfði með Mos Def en nú er verið að gera fullorðinshluti....
Mos Def er þó aldrei langt undan.

Tíminn líður hratt á örbylgjuöld.

V

2 ...og gammar geysa!:

Nafnlaus sagði...

Ég get svarið það...

Var að borða Chili con Carne sem eiginmaðurinn eldaði fyrir mig... Og enn ekkert barn!

Við fórum í langan göngutúr í dag og í gær og í fyrradag og ég valhoppaði og hoppaði niður af bekk og enn ekkert barn!

Það er byrjað að líkjast föður sínum! Þrjóskt og segir bara "ekkert vera að skipuleggja tímann minn, ég kem þegar mér sýnist"!!!

já, fínt!

Nafnlaus sagði...

hahahaha já ég sá operation myndirnar! snilld.
Greyid vinstri löppin á vedda, hún hlýtur ad vera ordin kreisehhhh!

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****